Skapandi greinar - Sýn til framtíðar
Skýrsla um aðkomu hins opinbera að skapandi greinum á Íslandi, Skapandi greinar – sýn til framtíðar, var kynnt þann 19. oktober s.l. í Hörpu.
Skýrslan er unnin af starfshópi á vegum fjögurra mennta- og menningarmálaráðuneytis, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis, fjármála- og efnahagsráðuneytis, utanríkisráðuneytis, Íslandsstofu og Samtökum skapandi greina. Hún fjallar um hvernig hið opinbera, ríki og sveitarfélög, haga stuðningi sínum við skapandi greinar með lagasetningu, stjórnsýslu, fjárveitingum og fjárfestingu í menntun, rannsóknum og innviðum.
Gerð er grein fyrir þeirri stefnu sem fyrir liggur og fjallað um hvernig hún hefur verið framkvæmd. Á grundvelli þessara upplýsinga leggur starfshópurinn fram 19 tillögur að bættu starfsumhverfi skapandi greina. Í tillögum sínum leggur starfshópurinn áherslu á að skapandi greinar séu atvinnugrein sem snerti mörg svið atvinnulífs, menningarlífs og mannlífs. Því sé mikilvægt að tryggja þverfaglegt samstarf stjórnsýslu, atvinnulífs og menningarlífs til þess að stuðla að uppbyggingu greinarinnar.

